
ÍSLENSKUSKÓLINN
HAGNÝT ORÐAFORÐAKENNSLA
Íslenskuskólinn gefur jöfn tækifæri nemenda til náms, þar sem tungumál er ekki hindrun heldur lykill. Framtíðarsýn hans er að orðaforðakennsla nemenda í íslensku verði samfelld allt frá leikskólaaldri í Litla Íslenskuskólanum, þar til nemandi hafi lokið Íslenskuskólanum við lok 10. bekkjar. Að nemandinn geti valið sér framhaldsnám sem hann kýs til að mennta sig og láti drauma sína rætast.

AF HVERJU AÐ INNLEIÐA ÍSLENSKUSKÓLANN?
ÁVINNINGUR FYRIR NEMENDA
EFLA ÍSLENSKAN ORÐAFORÐA
Lærir hagnýtan orðaforða sem heyrist sjaldan í töluðu máli. Nemendur geta tjáð hugsanir sínar, spurt spurninga og tekið virkari þátt í kennslustundum. Góður orðaforði hjálpar þeim að bæta við sig þekkingu og skilja flóknari hugtök.
BÆTA NÁMSÁRANGUR
Íslenska er notuð í mörgum námsgreinum, ekki aðeins í íslenskukennslu. Betri skilningur á íslensku auðveldar nemendum að lesa verkefni, skilja fyrirmæli og sýna þekkingu sína. Þeir geta átt auðveldara með að tileinka sér nýtt námsefni og ná námsmarkmiðum sínum.
STYRKJA SAMSKIPTAFÆRNI
Nemendur geta átt auðveldara með að kynnast bekkjarfélögum og eignast vini. Þeir geta tekið meiri þátt í hópavinnu, umræðum og félagsstarfi. Þeir læra að tjá skoðanir sínar, hlusta á aðra og leysa ágreining með samskiptum.
UPPLIFUN Á ÖRYGGI
Aukinn skilningur á íslensku getur minnkað óöryggi þegar nemendur tala við aðra eða taka þátt í kennslustundum. Þeir verða sjálfstæðari við að leita sér upplýsinga, biðja um hjálp og takast á við nýjar aðstæður. Þegar nemendur finna að þeir skilja umhverfi sitt og geta tjáð sig eykst oft sjálfstraust þeirra og líðan.
FLEIRI VALMÖGULEIKAR
Góð íslenskukunnátta getur opnað fleiri leiðir til áframhaldandi náms og atvinnu á Íslandi. Nemendur geta átt auðveldara með að sækja um nám eða störf og kynna eigin hæfni. Hún hjálpar þeim að taka virkan þátt í samfélaginu og vinna að markmiðum sínum til framtíðar.
STYRKJA TILFINNINGU FYRIR AÐ TILHEYRA SAMFÉLAGINU
Þegar nemendur eiga í samskiptum við aðra og tekið þátt í sameiginlegum verkefnum, upplifa þeir sig sem mikilvægur hluti af bekknum, skólanum og samfélaginu.
MEÐMÆLI
Það sem stjórnendur og kennarar hafa að segja um Íslenskuskólann.
,,XXXX"
J
,,XXXX"
J
,,XXXX"
J
HAFA SAMBAND
Ekki hika við að hafa samband við okkur til að fá frekari upplýsingar um námsleiðir okkar og hvernig við getum aðstoðað þig við að ná námsmarkmiðum þinnar stofnunnar.




