top of page

UM ÍSLENSKUSKÓLANN

Íslenskuskólinn í grunnskólum á Íslandi

Er ætlaður fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál og sérstaklega þá nemendur sem tala erlent tungumál heima. Hann er fyrir nemendur sem eru fæddir á Íslandi, nýlega komnir nemendur og nýkomnir frá öðrum löndum. Áhersla er lögð á að kenna fjölbreyttan og hagnýtan orðaforða, en það eru orð sem koma oft fyrir í námsbókum en heyrast sjaldan í töluðu máli. Í efstu bekkjum unglingadeildar er markmiðið að þeir nemi sértækan námsorðaforða.

 

Við kennsluna í Íslenskuskólanum er notast við falleg og myndræn myndaspjöld í A3 til að
læra orðin og festa í minni með fjölbreyttum kennsluháttum eins og málfræði, talað mál og hlustun, ritun og lestur. Íslenskuskólinn er kenndur í fjölmennum kennsluhópum með allt að 15 nemendum í einu. Hóparnir eru margir því Íslenskuskólinn er á öllum skólastigum alveg frá 1. bekk og upp í 10. bekk. 
Markmiðið Íslenskuskólans er að efla orðaforða til betri námsárangurs í öllum námsfögum skólans og skapa jöfn tækifæri til framhaldssnáms.

 

Íslenskuskólinn í leikskólum

Hentar einnig fyrir leikskóla þar sem orðaforðinn er kenndur í töluðu máli til að efla og
auðga orðaforða nemenda með íslensku sem annað tungumál. Hann er fyrir þá nemendur
sem tala annað tungumál en íslensku heima. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun og búa
börnin betur undir grunnskólanám.

 

Íslenskuskólinn í framhaldsskólum landsins

Hentar fyrir ÍSATnemendur þar sem orðaforðinn er myndrænn orðaforði á 2. þrepi og skiptir því ekki máli frá hvaða landi eða hversu lengi nemandinn er búinn að vera á Íslandi. Þar af
leiðandi gefur það góðan árangur að kenna Íslenskuskólann á móti almennri ÍSATkennslu til að bæta námsárangur í öðrum námsgreinum framhaldsskólans.

 

Atvinnulífið

Myndrænu orðaforðaspjöldin henta vel fyrir sértæka íslenskukennslu til dæmis fyrir
atvinnumarkaðinn þar sem lögð er áhersla á orðaforða atvinnugreinarinnar sem nýtist best í starfi starfsmanns.

1-1.jpg
Menntaverdlaun.jpg

TEYMIÐ

Elegant Blonde Corporate Portrait_edited

Ragnheiður Gísladóttir

Stofnandi og framkvæmdastjóri

Warm Sunlit Corporate Portrait_edited_ed

Lena Rut Ævarsdóttir

Markaðs- og hönnunarstjóri

848390275_28784376744526613_922060573617

Lena Ósk Guðlaugsdóttir

Verkefna- og vefumsjónarfulltrúi

ÍSLENSKUSKÓLINN

© 2026 by Íslenskuskólinn. Powered and secured by Wix.

bottom of page